GEO stendur fyrir Generative Engine Optimization og snýst um að gera fyrirtæki sýnileg í svörum gervigreindar, til dæmis ChatGPT, Google Gemini, Perplexity og AI Overviews. Þar sem hefðbundin leitarvélabestun (SEO) miðar að því að birtast ofarlega í niðurstöðum leitarvéla, miðar GEO að því að gervigreindin vísi beint í fyrirtækið þitt í niðurstöðum.
Hvernig er GEO frábrugðið SEO?
Þó margt sé sameiginlegt með SEO og GEO þá eru ákveðnir þættir sem aðgreina aðferðirnar. Góður tæknilegur grunnur nýtist báðum, en GEO leggur meiri áherslu á skipulögð gögn á vefsíðu, skýrt og tilvitnanahæft efni og umtal um vörumerkið frá traustum heimildum.
Hvers vegna skiptir GEO máli fyrir íslensk fyrirtæki?
Sífellt fleiri spyrja gervigreindina í stað þess að nota hefðbundna leit þegar leitað er að vöru og þjónustu. Þegar gervigreindin svarar nefnir hún aðeins örfá fyrirtæki. Fá íslensk fyrirtæki hafa unnið markvisst í sýnileika sínum í AI-leit, þannig að þau sem byrja núna geta náð forskoti.
Hvernig kemst fyrirtækið mitt í niðurstöður gervigreindar?
Fyrsta skrefið er úttekt: að mæla hvernig fyrirtækið birtist í AI-svörum í dag og hvort gervigreind komist yfirhöfuð í efnið á vefnum. Síðan er unnið að tæknilegum grunni (aðgengi, schema-merkingar, hraði), efni sem svarar spurningum viðskiptavina beint og umtali á heimildum sem gervigreindin treystir. Að lokum er árangurinn mældur reglulega með raunverulegum fyrirspurnum.
Hvað tekur langan tíma að sjá árangur af GEO?
Hér eru engar töfralausnir til. Það fer eftir stöðu vefsins og samkeppni. Tæknilegar lagfæringar geta skilað sér á nokkrum vikum en uppbygging efnis og umtals tekur yfirleitt nokkra mánuði. Þess vegna mælum við stöðuna reglulega og sýnum þróunina svart á hvítu í stað þess að giska.
Hvar stendur þitt fyrirtæki?
Einfaldasta leiðin til að komast að því er frí GEO-úttekt. Við skoðum vefinn þinn og hvernig gervigreindin talar um fyrirtækið þitt í dag, og sendum þér skýrslu með næstu skrefum.
Fáðu fría GEO-úttekt